top of page

Endurheimt eftir æfingu.

Herbalife24 Rebuild Strength er kolvetna- og próteindrykkur sem er hannaður til að styðja við endurheimt eftir styrktar- og ákefðaræfingar.

Drykkurinn inniheldur hágæða mysuprótein, L-glútamín og greinóttar amínósýrur (BCAA) ásamt sérvöldum kolvetnum sem stuðla að endurheimt eðlilegrar vöðvastarfsemi eftir langvarandi eða mjög ákafa líkamlega áreynslu.

Hver skammtur veitir 25 g af próteini, sem stuðlar að uppbyggingu og viðhaldi vöðvamassa.

Rebuild Strength inniheldur einnig C-vítamín og járn. Járn stuðlar að eðlilegri orkuefnaskiptingu, eðlilegri myndun rauðra blóðkorna og eðlilegum flutningi súrefnis um líkamann.

Nýttu tímann eftir æfingu sem best með Herbalife24 Rebuild Strength.

Kolvetni stuðla að endurheimt eðlilegrar vöðvastarfsemi eftir langvarandi eða mjög ákafa líkamlega áreynslu sem veldur þreytu í vöðvum og tæmingu glýkógenbirgða. Jákvæð áhrif fást með neyslu kolvetna, alls 4 g á hvert kg líkamsþyngdar, innan fyrstu 4 klukkustundanna og ekki síðar en 6 klukkustundum eftir æfingu.

 

Helstu kostir

  • Veitir 25 g af próteini í hverjum skammti.
  • Inniheldur hágæða mysuprótein.
  • Inniheldur 6,3 mg af járni í hverjum skammti.
  • Ríkt af C-vítamíni.
  • Inniheldur L-glútamín og greinóttar amínósýrur (BCAA).
  • Informed Sport-vottað – prófað með tilliti til bannaðra efna.
  • Hver askja inniheldur 7 skammtapoka.

 

Informed Sport-vottun:
Varan hefur verið prófuð af óháðri rannsóknarstofu samkvæmt Informed Sport gæðakerfinu. Sýni úr framleiðslulotunni hefur verið rannsakað og reyndist laust við efni sem eru á bannlista íþróttahreyfingarinnar.

 

Notkun

Blandið 1 skammtapoka (50 g) saman við 250 ml af vatni og hristið vel.

Neytið drykksins innan 30 mínútna eftir styrktar- eða aðra loftfirrta (anaeróbíska) æfingu.

Neytið vörunnar sem hluta af fjölbreyttu og hollu mataræði og virkum lífsstíl.

Geymið á köldum og þurrum stað.

Rebuild Strength Bréf súkkulaðibragð

4.810 kr.Price
Quantity
bottom of page