Formula 2 fjölvítamín með steinefnum fyrir karla er bætiefni með fjölda vítamína sem er sérsniðið að einstökum heilsuþörfum karla. Það inniheldur 24 lykilnæringarefni, þar á meðal vítamín og steinefni sem líkaminn getur ekki framleitt sjálfur eða framleitt í nægilegu magni. Þetta bætiefni getur stuðlað að því að starfsemi ónæmiskerfisins, vöðvastarfsemi, orkuefnaskipti og andleg frammistaða séu með eðlilegu móti.
Vöruþróunin var í höndum sérfræðinga í næringarmálum og varan grundvallast á vísindum. Þessu bætiefni er ætlað að vinna vel með eftirlætismáltíðardrykknum úr Formula 1 úrvalinu!
Helstu einkenni og kostir:
A- og C-vítamín til að stuðla að eðlilegri starfsemi ónæmiskerfisins.
Magnesíum til að stuðla að eðlilegri vöðvastarfsemi.
Ríbóflavín til að stuðla að eðlilegum orkugæfum efnaskiptum.
Pantóþensýra til að stuðla að eðlilegri andlegri frammistöðu.
Notkunarleiðbeiningar:
Takið eina eða tvær töflur á dag með fæðu. Ef drukknir eru tveir máltíðardrykkir á dag skal taka eina töflu. Ef drukkinn er einn máltíðardrykkur á dag skal taka tvær töflur. Notið þessa vöru sem hluta af vel samsettu og fjölbreyttu mataræði og heilnæmum og virkum lífsstíl.

