top of page
Search

Bioniq GO: Vítamín sniðin að þér

11 minutes ago
2 min read

Flest viljum við borða vel og fá öll vítamínin og steinefnin sem líkaminn þarf.  En hvaða vítamín á maður að taka? Hillurnar eru fullar af glösum og það er auðvelt að gefast upp.  Bioniq GO er ný leið sem Herbalife býður upp á: í stað þess að velja úr mörgum glösum færðu eina blöndu sem er valin út frá þér.

Hvað er Bioniq GO?

Bioniq GO er daglegt fæðubótarefni með vítamínum og steinefnum sem er sniðið er að hverjum og einum.  Þú tekur það sem lítil korn (granúlur) í einum skammti á dag.

Hvernig virkar það – á mannamáli

  1. Þú svarar nokkrum spurningum á netinu um aldur, kyn, lífsstíl og hvað þú vilt leggja áherslu á.

  2. Kerfið finnur blönduna þína. Út frá svörunum er valin ein af 40 mismunandi blöndum sem passar best við þig.

  3. Allt í einum skammti. Hver blanda inniheldur allt að 23 vítamín og steinefni.

  4. Mánaðarskammtur. Bioniq GO kemur í 30 daga skammti svo það verður auðvelt að halda rútínunni.

Hvaðan kemur Bioniq?

Bioniq var stofnað í London árið 2019 og hefur sérhæft sig í sérsniðnum bætiefnum.  Árið 2026 keypti Herbalife fyrirtækið það og síðan hefur Bioniq GO verið að koma á markað í Evrópu í gegnum dreifingaraðila Herbalife.

Hvað kemur Ronaldo málinu við?

Cristiano Ronaldo hefur verið næringarsamstarfsaðili Herbalife síðan 2013.  Hann er hluthafi í Bioniq og hefur sjálfur notað Bioniq síðan 2022.  Fyrr á árinu 2026 fjárfesti hann einnig í Pro2col, nýju heilsuappi Herbalife.  Sem sagt: Ronaldo er ekki bara andlit í auglýsingu heldur á hann hlut í þessum lausnum.

Cristiano Ronaldo og Vadim Fedotov, stofnandi Bioniq, með Bioniq-treyju

Fyrir hvern er þetta?

  • Fyrir þá sem vilja einfalda vítamínrútínuna og hætta að giska.

  • Fyrir þá sem vilja blöndu sem er valin út frá eigin lífsstíl og markmiðum.

  • Fyrir þá sem eru oft á ferðinni og vilja einn skammt á dag.

Gott að hafa í huga: Fæðubótarefni koma ekki í staðinn fyrir fjölbreytt og hollt mataræði og heilbrigðan lífsstíl.  Ef þú ert ólétt, með barn á brjósti, tekur lyf eða ert með undirliggjandi sjúkdóm skaltu ráðfæra þig við lækni áður en þú byrjar á nýju fæðubótarefni.

Langar þig að prófa?

Bioniq GO er nýtt hjá Herbalife og er að koma á markað í fleiri Evrópulöndum.  Fylgstu með hér á Mitt Besta Form – við segjum frá því um leið og þessi nýjung kemur til Íslands.

 
 
 

Comments


bottom of page